Davíð dregur fána UMFÍ að húni á Egilsstöðum

Davíð Þór Sigurðsson, formaður íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum, dró fána UMFÍ að húni í dag á einni af fánaborgunum sem búið er að koma fyrir á

Davíð dregur fána UMFÍ að húni á Egilsstöðum
Fréttatilkynning - - Lestrar 580

DAvíð Þór dró fána UMFÍ að húni.
DAvíð Þór dró fána UMFÍ að húni.

Davíð Þór Sigurðsson, formaður íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum, dró fána UMFÍ að húni í dag á einni af fánaborgunum sem búið er að koma fyrir á Egilsstöðum.

Unglingalandsmót UMFÍ fer fram í bænum um verslunarmannahelgina. í Tilkynningu segir að búist sé við um og yfir 1.000 keppendum á aldrinum 11-18 ára og foreldrum og forráðamönnum þeirra. Gert er ráð fyrir allt að 10.000 gestum á Egilsstöðum frá öllu landinu á meðan mótið fer fram dagana 4.- 6. ágúst. Nokkur röskun verður á daglegu lífi bæjarbúa á meðan Unglingalandsmóti UMFÍ stendur um verslunarmannahelgina. Nokkrum götum verður lokað í bænum og nágrenni hans og munu strætisvagnar aka fólki til að draga úr bílaumferð í bænum.

Veðurstofa Íslands spáir úrvals keppnisveðri á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina, þurrki og logni.

Undirbúningur er í fullum gangi fyrir mótið á Egilsstöðum, búið er að gera frábæra stíga fyrir keppni í fjallahjólreiðum og verið að marka tjaldstæðin fyrir keppendur og fjölskyldur þeirra sem sumar hverjar koma langt að. Mikið er í boði fyrir alla fjölskylduna á Unglingalandsmóti UMFÍ. Námskeið í leikjum, fimleikum, frisbí og margt fleira. Á kvöldin verða tónleikar með flottasta tónlistarfólki þjóðarinnar.

Ákveðið var í dag að halda skráningum áfram opnum fram á þriðjudagskvöld, það er fram að lokum dagsins 1. ágúst. Skráning fer fram á www.umfi.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744