09. jan
Brynja Rún ráðin tímabundið í starf launafulltrúa NorðurþingsAlmennt - - Lestrar 580
Brynja Rún Benediktsdóttir hefur verið ráðin í tímabundið starf launafulltrúa Norðurþings.
Í tilkynningu segir að Brynja, sem er með MSc gráðu í mannauðsstjórnun frá The University of Edinburgh Business School, hafi góða þekkingu á launavinnslu og tímaskráningarkerfum.
Brynja Rún hefur undanfarið starfað sem mannauðs- og hótelstjóri hjá Gistiheimili Húsavíkur ehf. þar sem hún sinnti mannauðs- og launamálum ásamt ýmsum öðrum verkefnum.
Brynja mun hefja störf í janúar.