Borgarhólsskóli sigraði Stóru upplestrarkeppnina

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram síðastliðinn föstudag í Safnahúsinu á Húsavík.

Sigurvegarar í stóru upplestrarkeppninni á Húsavík
Sigurvegarar í stóru upplestrarkeppninni á Húsavík

Lokahátíð Stóru upplestrar-keppninnar fór fram síðastliðinn föstudag í Safnahúsinu á Húsavík.

Átta ungmenni úr 7. bekk úr Borgarhólsskóla, Reykjahlíðarskóla og Þingeyjarskóla komu fram og fluttu mál sitt fyrir gesti.

Í fyrstu umferð voru lesnar svipmyndir úr barnabókinni Blái hnötturinn eftir Andra Snæ Magnason. Í annarri umferð voru lesin ljóð eftir Steinunni Sigurðardóttur. En í þriðju og síðustu umferð fengu lesarar val um hvaða ljóð þeir vildu flytja.

Nemendur Tónlistarskóla Húsavíkur, Reykjahlíðarskóla Þingeyjarskóla voru með tónlistaratriði.

Upplestrarkeppnin

Í fyrsta sæti var Klara Hrund Baldursdóttir úr Borgarhólsskóla, í öðru sæti var Dagbjört Lilja Daníelsdóttir úr Borgarhólsskóla og þriðja sæti skipaði Valdemar Hermannsson úr Þingeyjarskóla. Ljósmynd 641.is

Borgarhólsskóli

Lesarar úr Borgarhólsskóla. Auk Klöru Hrundar og Dagbjartar Lilju voru þær Ester Eva Ingimarsdóttir og Friðrika Bóel Jónsdóttir fulltrúar Borgarhólsskóla og voru þær allar skólanum til mikils sóma. Ljósmynd Borgarhólsskóli


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744