Aukning á skipakomum til Húsavíkur

Mikil aukning hefur verið á skipakomum til Húsavíkur nú í byrjun árs og hefur mátt sjá skipin bíða fyrir utan höfnina undanfarna daga.

Aukning á skipakomum til Húsavíkur
Almennt - - Lestrar 147

Mikil aukning hefur verið á skipakomum til Húsavíkur nú í byrjun árs og hefur mátt sjá skipin bíða fyrir utan höfnina undan-farna daga.

Á heimasíðu Norðurþings segir að aukninguna megi rekja til þess að um áramót fór kísilver PCC á Bakka við Húsavík að framleiða á fullum afköstum á ný eftir að hafa keyrt á hálfum afköstum á síðasta ári.

Í sumar er gert ráð fyrir að 54 skemtiferðaskip heimsæki Húsavík heim en á síðasta ári komu alls 41 skemmtiferðaskip til Húsavíkur.

Hér má sjá dagatal sem sýnir komur skemmtiferðaskipa árið 2024


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744