Atli, Halldór Árni og Sigvaldi Þór semja við Völsung

Penninn var á lofti í gærkvöldi hjá meistaraflokki Völsungs þegar Atli Barkarson, Halldór Árni Þorgrímsson og Sigvaldi Þór Einarsson skrifuðu undir nýja

Strákarnir ásamt Júlíusi formanni knattspyrnuráðs.
Strákarnir ásamt Júlíusi formanni knattspyrnuráðs.

Penninn var á lofti í gærkvöldi hjá meistaraflokki Völsungs þegar Atli Barkarson, Halldór Árni Þorgrímsson og Sigvaldi Þór Einarsson skrifuðu undir nýja samninga við félagið.

Á heimasíðu Völsungs segir að alli séu þeir uppaldir Völsungar sem hafa kosið að leggja Völsungi lið næstu tvö árin. Því er allaf fagnað þegar hæfileikaríkir heimamenn skrifa undir og verður gaman að sjá til þessara drengja í grænu á næsta ári.

Þessar undirskriftir eru í takt við stefnu félagsins að halda uppöldum leikmönnum hjá félaginu og sýnir einnig hversu öflugt yngri flokka starfið er hér á Húsavík.

Hér má skoða myndir frá undirskrift samninganna.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744