Áslaug Munda í byrjunarliði gegn Tékkum

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var í byrjunarliði U-17 ára landsliðsins í knattspyrnu í leik gegn Tékkum í Skotlandi í gær.

Áslaug Munda í byrjunarliði gegn Tékkum
Íþróttir - - Lestrar 501

Byrjunarliðið gegn Tékkum. Lj. ksi.is
Byrjunarliðið gegn Tékkum. Lj. ksi.is

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var í byrjunarliði U-17 ára landsliðsins í knattspyrnu í leik gegn Tékkum í Skotlandi í gær.

Áslaug byrjaði á miðjunni í leiknum sem var sá fyrsti hjá liðinu í æfingamóti U17 hjá UEFA.

Tékkar sigruðu 1-0 og kom markið úr vítaspyrnu en leikurinn var jafn og spennandi.

Hildur Þóra Hákonardóttir úr Breiðabliki var einnig í byrjunarliðinu en hún á ættir sínar að rekja til Húsavíkur, foreldrar hennar eru Hákon Hrafn Sigurðsson og Þórhalla Gunnarsdóttir.

U17

Íslenska liðið fyrri leikinn, Áslaug Munda er nr. 2 og Hildur Þóra nr. 5.

Ljósmynd ksi.is

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744