Ársskýrsla Þekkingarnetsins komin útAlmennt - - Lestrar 136
Ársskýrsla Þekkingarnetsins fyrir árið 2015 var að koma út.
Um er að ræða yfirlit starfseminnar ásamt því að í sömu skýrslu er starfsáætlun fyrir árið 2016. Í skýrslunni má sjá helstu tölur úr starfseminni og yfirlit verkefna sem unnin voru á liðnu ári.
Árið 2015 var að mörgu leyti mjög gott í starfsemi Þekkingarnetins þar sem óvenju mikill fjöldi nemenda sótti nám og umsvif meiri en liðin ár. Rekstur var þó þyngri en oft þar sem tekjustofnar hafa ekki haldið í við föst og samningsbundin útgjöld.
Þekkingarnetið stendur sterkum fótum, býr yfir miklum mannauði, hefur góða verkefnastöðu sem stendur og er skuldlaust. Þetta gerir stofnunina vel í stakk búna til að takast á við verkefni næstu missera segir í frétt á heimasíðu ÞÞ