17. feb
Arney valin í æfingahóp U16 í blakiÍþróttir - - Lestrar 474
Völsungurinn Arney Kjartansdóttir hefur verið valin í æfingahóp U-16 ára landsliðsins í blaki.
Æfingarnar fara fram dagana 18. og 19. febrúar. Þetta er í þriðja skiptið frá því í nóvember sem Arney hefur verið valin til þess að mæta á æfingar hjá U-16 ára landsliðinu.
640.is óskar Arneyju til hamingju með árangurinn sem og góðs gengis í komandi verkefni.