Arna Védís Bjarnadóttir valin í U-19 í blaki

Arna Védís Bjarnadóttir hefur verið valin í 12 manna landsliðshóp U-19 til að taka þátt í NEVZA mótinu.

Arna Védís Bjarnadóttir valin í U-19 í blaki
Íþróttir - - Lestrar 537

Arna Védís í leik með Völsungi.
Arna Védís í leik með Völsungi.

Arna Védís Bjarnadóttir hefur verið valin í 12 manna landsliðshóp U-19 til að taka þátt í NEVZA mótinu. 

Mótið fer fram í Kettering á Englandi um komandi helgi, 26.-28. október.

Emil Gunnarsson er landsliðsþjálfari U-19 og valdi hann 12 leikmenn úr sex félagsliðum. Eins og fyrr segir fer mótið fram um komandi helgi og er leikið geng liðum Englands og Danmerkur.

Arna Védís er efnilegur blakspilari sem leikur með meistaraflokki Völsungs í Mizunodeild kvenna.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744