Alli á Mánárbakka sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu

Forseti sæmdi 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á þjóðhátíðardaginn 17. júní.

Aðalgeir Egilsson. Ljósmynd Sunna Mjöll.
Aðalgeir Egilsson. Ljósmynd Sunna Mjöll.

Forseti sæmdi 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum gær, þjóðhátíðar-daginn 17. júní. 

Á meðal þessara fjórtán orðuhafa er Aðalgeir Egilsson bóndi á Mánárbakka sem hlaut riddarakross fyrir framlag til veðurathugana og minjavörslu.

Asend mynd

Hópurinn sem hlaut fálkaorðuna ásamt Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands á Bessatöðum í gær.

Ljósmynd forseti.is

Þau sem sæmd voru heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Þjóðtíðardaginn eru:

1. Aðalgeir Egilsson bóndi, riddarakross fyrir framlag til veðurathugana og minjavörslu.
2. Árný Aurangasri Hinriksson kennari, riddarakross fyrir störf í þágu ættleiddra barna.
3. Davíð Ottó Arnar, yfirlæknir og prófessor, riddarakross fyrir framlag til hjartalækninga, vísindarannsókna og nýsköpunar.
4. Elínborg Lárusdóttir félagsráðgjafi, riddarakross fyrir störf í þágu blindra og sjónskertra.
5. Guðmundur Fylkisson lögreglumaður, riddarakross fyrir störf í þágu ungmenna og samfélags.
6. Guðrún Birna Gísladóttir, fyrrverandi forstjóri, riddarakross fyrir umönnun og þjónustu við aldraða.
7. Hafliði Már Aðalsteinsson skipasmíðameistari, riddarakross fyrir framlag til atvinnulífs, strand- og iðnmenningar.
8. Helgi Guðmundsson, prófessor emeritus, riddarakross fyrir framlag til menntunar og rannsókna á sviði íslenskra fræða.
9. Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir bóndi, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf í landbúnaði.
10. Jónatan Garðarsson fjölmiðlamaður, riddarakross fyrir dagskrárgerð og þekkingarmiðlun um dægurtónlist, nærumhverfi og skógrækt.
11. Kristín Jónsdóttir jarðskjálftafræðingur, riddarakross fyrir framlag til vísinda, miðlunar og náttúruvárvöktunar.
12. Lilja Hjaltadóttir, fiðluleikari og kennari, riddarakross fyrir framlag til tónlistaruppeldis- og menntunar.
13. Peter Weiss forstöðumaður, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf á sviði menntunar.
14. Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri, riddarakross fyrir störf í þágu menningarmála og ferðaþjónustu.

Aðsend mynd

Aðsend mynd

Þessar tvær myndir tók Sunna Mjöll Bjarnadóttir á Bessastöðum í gær.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744