Álftanes lagði Völsung

Völsungar sóttu lið Álftaness heim í 3. deild karla í gær.

Álftanes lagði Völsung
Íþróttir - - Lestrar 378

Jóhann Þórhallsson skoraði mark Völsungs.
Jóhann Þórhallsson skoraði mark Völsungs.

Völsungar sóttu lið Álftaness heim í 3. deild karla í gær.

í frétt á Fótbolti.net segir að Ronnarong Wongmahadthai hafi komið heimamönnum yfir eftir 33 mínútna leik, en Jóhann Þórhallsson jafnaði á 63. mínútu. Jóhann hefur verið duglegur við markaskorun Völsunga í sumar en þetta var hans sjöunda mark í sjö leikjum. 

Guðbjörn Alexander kom Álftnesingum yfir þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum. Álftanes unnu því sinn fyrsta sigur og eru komnir með fjögur stig og upp úr neðsta sæti deildarinnar, en þar sitja Víðismenn með aðeins tvö stig. 

Völsungar eru áfram með sjö stig í sjöunda sæti deildarinnar.



  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744