Ágræðsludagur á Vöglum

Á uppstigningardag voru sprotar af úrvalstrjám fjallaþins græddir á grunnstofna í fræhöllinni á Vöglum í Fnjóskadal.

Ágræðsludagur á Vöglum
Almennt - - Lestrar 171

Thomas Kunø ágræðslumeistari einbeittur á svip.
Thomas Kunø ágræðslumeistari einbeittur á svip.

Á uppstigningardag voru sprotar af úrvalstrjám fjallaþins græddir á grunnstofna í fræhöllinni á Vöglum í Fnjóskadal.

Til verksins kom danskur sérfræðingur sem kann vel til verka við ágræðslu á þini. Ágræddu trén verða notuð sem frætré til framleiðslu á fyrsta flokks jólatrjám í íslenskum skógum og fyrstu fræin gætu þroskast eftir fimm ár ef allt gengur að óskum. Sama dag voru ágrædd lerkitré til að fjölga frætrjánum sem gefa af sér lerkiblendinginn Hrym.
 

Ágræðsla þinsins er hluti af kynbótaverkefni sem unnið er að hjá Skógrækt ríkisins undir stjórn Brynjars Skúlasonar, sérfræðings á Rannsóknastöð skógræktar, Mógilsá. Brynjar stundar nú doktorsnám í skógerfðafræði við Kaupmannahafnarháskóla og er þinurinn viðfangsefni hans. Markmiðið er að búa til úrvalsyrki af fjallaþin til jólatrjáaframleiðslu hérlendis. Til að stýra ágræðslunni á þininum fékk Brynjar danskan sérfræðing til landsins, Thomas Kunø, sem er þaulvanur ágræðslumaður, ekki síst við ágræðslu nordmannsþins sem er helsta tegundin í jólatrjáarækt í Danmörku.

Valdir höfðu verið fallegir fjallaþinir á nokkrum stöðum á Íslandi og af þeim klipptir sprotar sem græddir voru á grunnstofna eða fósturtré sömu tegundar. Ágræddu trén verða svo ræktuð upp í gróðurhúsi og fyrsta fræuppskeran gæti komið eftir fimm ár eða svo ef vel gengur. Fyrsta uppskera kynbættra jólatrjáa af fjallaþini gæti þá orðið eftir 15-20 ár og þá gæti íslenskur fjallaþinur farið að keppa fyrir alvöru við innfluttan nordmannsþin.

Með þessu starfi er verið að flytja tré sem hafa sannað erfðafræðileg gæði sín inn í gróðurhús til að flýta fyrir blómgun og fræmyndun og svo hægt verði að víxla á milli þeirra. Báðir foreldrar afkvæmanna verða þá gæðatré. Sama aðferð hefur verið notuð með góðum árangri við ræktun á lerkiblendingnum Hrym sem einmitt fer fram í fræhöllinni á Vöglum með víxlun rússalerkis og evrópulerkis.

Á uppstigningardag var lerki einnig ágrætt því til stendur að fjölga frætrjánum svo framleiða megi meira af Hrymsfræi. Þröstur Eysteinsson skógerfðafræðingur stýrði þeirri ágræðslu.

Lesa nánar um verkefnið, skoða myndir og myndband

Myndir og texti Pétur Halldórsson. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744