Við erum Terra

Gámaþjónustan, Gámaþjónusta Norðurlands, Efnamóttakan og Hafnarbakki skiptu um nafn í dag og munu héðan í frá verða Terra.

Við erum Terra
Fréttatilkynning - - Lestrar 259

Gámaþjónustan, Gámaþjónusta Norðurlands, Efnamóttakan og Hafnarbakki skiptu um nafn í dag og munu héðan í frá verða Terra.

Í tilkynningu segir að Terra sé latneskt heiti jarðargyðjunnar og eitt af nöfnum plánetunnar sem er heimkynni okkar allra og á vel við, enda snýr allt okkar starf að bættri umgengni við jörðina.

 Nýtt merki félagsins byggir á hringformi sem vísar til jarðarinnar, en einnig birtist í merkinu spírað fræ, tákn sjálfbærni og endurnýjunar til framtíðar.

Terra skilgreinir sig sem fyrirtæki í umhverfisþjónustu, býður upp á lausnir til söfnunar og flokkunar á úrgangi og endurvinnsluefnum, og sér um að koma þessum efnum í réttan farveg. Terra starfar um land allt.

Terra vinnur að því með viðskiptavinum félagsins að flokka sem mest og hvetur jafnframt til minni notkunar á umbúðum og efnum sem þarfnast sérstakrar meðhöndlunar. Markmið Terra er að skilja ekkert eftir. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744