13. jan
Velja mann ársins 2020Almennt - - Lestrar 478
Friðgeir Bergsteinsson fékk þá hugmynd á dögunum að velja Þingeying/Húsvíking ársins 2020 og vill fá aðstoð við að velja hann.
"Nú á dögunum fór hugur minn að reika á heimaslóðir, nánar tiltekið til Húsavíkur.
Margir þaðan hafa verið áberandi á árinu sem leið og langar mig að veita þeim einstaklingi sem fær flest atkvæði frá ykkur viðurkenningu.
Ég er búinn að heyra í nokkrum fyrirtækjum á Húsavík sem ætla gefa vinning. Langar mig að þið fylgjendur á þessari síðu sendið mér ykkar tillögur að Þingeyingi/Húsvíkingi ársins 2020. Það má vera einhver sem ykkur finnst það skilið.
Endilega sendið póst á netfangið mitt, fridgeirb@gmail.com og í byrjun febrúar verður sá einstaklingur sem fær flest atkvæði tilkynntur hér. 100% trúnaður fylgir öllum ábendingum. Hlakka til að heyra frá ykkur". Segir Friðgeir.