Söngleikurinn Ást frumsýndur

Um helgina var Söngleikurinn Ást frumsýndur í Samkomuhúsinu á Húsavík. Vakti leikurinn fádæma góðar undirtektir, en leikstjóri er Jakob S. Jónsson og

Söngleikurinn Ást frumsýndur
Almennt - - Lestrar 411

Anna Kristrún og Siggi Illuga í hlutverkum sínum.
Anna Kristrún og Siggi Illuga í hlutverkum sínum.

Um helgina var Söngleikurinn Ást frumsýndur í Samkomuhúsinu á Húsavík. Vakti leikurinn fádæma góðar undirtektir, en leikstjóri er Jakob S. Jónsson og tónlistarstjóri Knútur Emil Jónasson.

Frumsýningargestir fögnuðu vel og lengi í lok sýningar og var almennt talið, að sýningin væri bæði skemmtileg og einlæg og gæfi mörg tækifæri til hláturs þótt undirtónninn sé líka alvarlegur.

-­‐ Þessi sýning er bæði djúp og full af ást, var álit ungs áhorfenda, sem sagði að þessi sýning um ást á elliheimili ætti erindi til allra.

Söngleikurinn Ást er eftir þá Vesturportsfélaga Gísla Örn Garðarsson og Víking Kristjánsson og er þetta í fyrsta sinn, sem áhugaleikfélag á Íslandi tekur verkefni úr smiðju Vesturports upp á sína arma.

Um tuttugu leikarar stíga á svið og eru flestir meðal reyndustu leikara leikfélags Húsavíkur. Þriggja manna hljómsveit leikur undir en fjöldi þekktra íslenskra og erlendra sönglaga fléttast inn í atburðarás verksins. Erlendu lögin voru flest þýdd á íslensku fyrir þessa uppfærslu Leikfélags Húsavíkur.

Með Söngleiknum Ást vill Leikfélag Húsavíkur i samvinnu við fyrirtæki í bænum og Húsavíkurstofu gera Húsavík að höfuðborg ástarinnar og gefur félagið kost á leikhúsferðum af öllu Norður-­‐ og Austurlandi í samvinnu við Fjallasýn ehf., Veitingahúsið Sölku, Foss Hótel Húsavík og flugfélagið Ernir.

Söngleikurinn Ást verður sýndur fram í desember og verða sýningar teknar upp aftur milli jóla og nýárs og verður sýnt fram í janúar. Vissara er að tryggja sér miða í tíma, en fjöldi sýninga fer eftir aðsókn.

Nánari upplýsingar má fá hjá Leikfélagi Húsavíkur í síma 854 0044 og á vefsíðunni www.leikfelagid.is. (Fréttatilkynning)

Hér að neðan eru nokkrar myndir sem ljósmyndari 640.is tók á æfingu rétt fyrir frumsýningarhelgina.

Ast9

Jakob S. Jónsson leikstjóri.

Ast1

 

At2

 

Ast3

 

Ast10

 

Ast4

 

Ast5

 

Ast6

 

Ast7

 

Ast8

 

Ást11


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744