Skrifað undir samninga gerð Vaðlaheiðarganga

Síðdegis var skrifað undir samninga um gerð Vaðlaheiðarganga og um eftirlit með framkvæmdinni.

Skrifað undir samninga gerð Vaðlaheiðarganga
Almennt - - Lestrar 188

Síðdegis var skrifað undir samninga um gerð Vaðlaheiðarganga og um eftirlit með framkvæmdinni.

IAV og svissneska fyrirtækið Matri átti lægsta tilboðið en  áætlaður kostnaður í dag er um 11,5 milljarðar króna.

Tilboð Geotek og Eflu í eftirlit með framkvæmdinni hljóðaði upp á rúmlega 420 milljónir króna.

Vaðlaheiðargöng verða 7,5 kílómetra löng með vegskálum beggja vegna. Göngin munu stytta Hringveginn um 16 kílómetra og áætluð umferð við opnun ganganna er um 1400 bílar á sólarhring.

Vinna hefst strax við undirbúning framkvæmda en reiknað er með að byrjað verði að sprengja í vor Eyjafjarðarmegin en á næsta ári úr Fnjóskadal.

Verklok eru áætluð árið 2016. (vikudagur.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744