Mynd dagsins - Lionsmenn styrkja björgunarsveitina

Mynd dagsins var tekin síðdegis þegar Lionsmenn afhentu Björgunarsveitinni Garðari veglegan peningastyrk.

Mynd dagsins - Lionsmenn styrkja björgunarsveitina
Mynd dagsins - - Lestrar 332

Mynd dagsins var tekin síðdegis þegar Lionsmenn afhentu Björg-unarsveitinni Garðari veglegan peningastyrk.

Það voru þeir Bárður Guðmunds-son formaður, Hlífar Karlsson ritari og Guðmundur Guðjónsson gjald-keri Lionsklúbbs Húsavíkur sem afhentu gjafabréfið.

Birgir Mikaelsson formaður björgunarsveitarinnar tók við styrknum ásamt Júlíusi Stefánssyni gjaldkera og þökkuðu þeir Lionsmönnum kærlega fyrir styrkinn. Sögðu hann koma að góðum notum enda stendur sveitin í stórræðum þessa dagana þar sem m.a er verið er byggja við húsnæði hennar.

Ljósmynd 640.is

Fv. Lionsmennirnir Guðmundur Guðjónsson Hlífar Karlsson og Bárður Guðmundsson ásamt Birgi Mikaelssyni og Júlíusi Stefánssyni frá Björgunarsveitinni Garðari.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744