Mynd dagsins - Á skaki með afa

Mynd dagsins var tekin við Húsavíkurhöfn í dag þegar strandveiðibátarnir voru að landi koma að eftir róður dagsins.

Mynd dagsins - Á skaki með afa
Mynd dagsins - - Lestrar 568

Mynd dagsins var tekin við Húsa-víkurhöfn í dag þegar strandveiði-bátarnir voru að koma að landi eftir róður dagsins.

Myndin sýnir Birgi Sævar Víðisson sem hefur að undanförnu róið með afa sínum Guðmundi A. Jónssyni en hann gerir Jón Jak ÞH 8 út á skakið.

Annars var það að heyra á köllunum að strandveiðum fari senn að ljúka þetta árið, lokið verði við að veiða það sem í pottinum er í byrjun næstu viku.

Ljósmynd 640.is

Birgir Sævar, sem fer í 9. bekk Borgarhólsskóla í vetur, um borð í Jóni Jak í dag en með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744