Malbikað á Stangarbakkanum

Í dag var unnið að yfirborðsfrágangi á göngustígnum sem unnið hefur verið að á Stangarbakkanum sl. mánuði.

Malbikað á Stangarbakkanum
Almennt - - Lestrar 284

Unnið að yfirborðsfrágangi á Stangarbakkanum.
Unnið að yfirborðsfrágangi á Stangarbakkanum.

Unnið hefur verið að fram-kvæmdum við safnlögn yfirborðsvatns og göngustígs á Stangarbakkanum undanfarna mánuði en nú sér fyrir endann á því verki.

Í dag voru menn frá Malbikun Norðurlands að malbika stíginn sem nær frá brúnni yfir Búðarárgil og suður að Þverholti.

Það styttist því í að íbúar Norðurþings og gestir þeirra geti farið að spássera eftir bakkanum á upphituðum göngustígnum.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Yfirborðsfrágangur á Stangarbakkanum.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Göngustígurinn nær frá brúnni yfir Búðarárgil suður að Þverholti.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744