Fyr­ir­tæki lesi af mæl­um til að minnka kostnað

Orka heimilanna hvetur rekstraraðila minni fyrirtækja sem greiða rafmagn eftir áætlun og hafa hætt eða dregið verulega úr starfsemi, til að lesa af

Fyr­ir­tæki lesi af mæl­um til að minnka kostnað
Fréttatilkynning - - Lestrar 149

Orka heimilanna hvetur rekstraraðila minni fyrirtækja sem greiða rafmagn eftir áætlun og hafa hætt eða dregið verulega úr starfsemi, til að lesa af rafmagnsmælum og skila inn álestri einu sinni í mánuði á meðan þetta ástand varir.

Í tilkynning frá fyrirtækinu segir að þetta séu fordæmalausar tímar og margir atvinnurekendur horfi fram á rekstrarerfiðleika vegna versnandi efnahagsaðstæðna.

"Margir hafa dregið verulega úr starfsemi eða jafnvel lokað alveg. Flest minni fyrirtæki greiða rafmagn eftir áætlun. Við viljum hvetja eigendur fyrirtækja sem eru í þessari stöðu til þess að lesa af rafmagnsmælum núna og svo um hver mánaðarmót á meðan ástandið varir. Þannig kemur rafmagnsreikningur til með að lækka í hlutfalli við minni starfsemi.

Álestrum er skilað inn til dreifiveitna á vefsíðum þeirra. Ef það er ekki gert fá fyrirtæki áfram reikninga eftir áætlun sem miðar við fulla starfsemi" segir í tilkynningunni en starfsmenn Orku heimilanna eru ávallt tilbúnir að svara spurningum sem upp geta komið.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744