Ferðamenn fastir á Dettifossvegi

Björgunarsveitirnar Garðar á Húsavík og Núpar á Kópaskeri voru kallaðar út í gærkveldi til aðstoðar erlendum ferðamönnum sem fest höfðu bíla sína á

Ferðamenn fastir á Dettifossvegi
Almennt - - Lestrar 298

Björgunarsveitirnar Garðar á Húsavík og Núpar á Kópaskeri voru kallaðar út í gærkveldi til aðstoðar erlendum ferðamönnum sem fest höfðu bíla sína á Dettifossvegi. Töluvert hefur verið um að ferðamenn hafi lent í vandræðum á þessum slóðum undanfarið og hafa björgunarsveitir verið kallaðar út þeim til aðstoðar.(landsbjorg.is)

Vert er að geta þess Neyðarkall björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður seldur um land allt nú um helgina. Er þetta í sjötta sinn sem þessi fjáröflun fer fram og er hún orðin ein sú mikilvægasta fyrir björgunarsveitir landsins.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744