Dettifoss: Lokað!

Ferðamaður vill komast að Dettifossi að vetri til. Ekki furða, hann vill fá að sjá aflmesta foss Evrópu og einstaka náttúruperlu.

Dettifoss: Lokað!
Aðsent efni - - Lestrar 516

Baldvin Esra Einarsson
Baldvin Esra Einarsson

Ferðamaður vill komast að Dettifossi að vetri til. Ekki furða, hann vill fá að sjá aflmesta foss Evrópu og einstaka náttúruperlu. 

Hann vill fá að upplifa kraftinn sem býr í fossinum og sjá þetta undur með eigin augum. Engan skal undra, því Dettifoss er eitt helsta aðdráttarafl Norðurlands og ein meginstoð ferðaþjónustu svæðisins.

Ferðamaðurinn heldur því af stað, úr Mývatnssveit, nú eða frá Egilstöðum eða Akureyri. Hann keyrir á vel mokuðum og breiðum þjóðvegi 1 og heldur á Öræfin.

Hann nálgast afleggjarann að Dettifossvegi en þar er lokað. Snjómokstur er ekki á áætlun á veturna, bara vorin og á haustin. Ferðamaðurinn annað hvort ákveður að hunsa lokanir, ætlar sér að komast að fossinum og festir sig og þarf að kalla eftir aðstoð, eða snýr við dapur í bragði.

Skipulagðar ferðir að fossinum eru vissulega í boði, á mikið breyttum bílum á 42“ dekkjum, með tilheyrandi kostnaði og vandræðum því það er jú verið að fara ófæran veg. Það er svo sem ekkert rangt við það að vegur sé lokaður á vetrum, ef hann er ekki í notkun. En þessi vegur er í notkun og það er töluverð eftirspurn eftir því að nota hann, allt árið um kring. Það vilja nefnilega margir heimsækja Dettifoss.

Vegagerðin segir að vetrarmokstur sé ekki á áætlun og að það sé ekki til fjármagn fyrir þessari þjónustu. Gott og vel, hver stýrir því? Stjórnmálin. Hvað segja þau? Ekki bofs og allir vísa málinu áfram á einhvern annan.

Eru þetta boðleg vinnubrögð? Það finnst mér ekki. Hafa stjórnmálin áhuga á því að efla ferðaþjónustu um land allt, eða bara við sjóndeildarhringinn? Hafa þau áhuga á að efla byggðir og búa til heilsársstörf í ferðaþjónustu, eða er það bara eitthvað sem er sagt við sérstök tilefni? Við sem störfum í ferðaþjónustu á Norðurlandi viljum gera einmitt þetta, efla og bæta þjónustu, fjölga störfum og starfa allt árið við þessa starfsgrein. Fyrst og fremst viljum við taka vel á móti fólki og sýna þeim hvað landið okkar hefur upp á að bjóða, og skila því ánægðu og heilu heim.

Það væri langt best ef það væri hægt að koma þessu í lag núna strax. Hvað gerist svo næsta vetur, þegar vegurinn frá Dettifossi og að Ásbyrgi verður fullkláraður og malbikaður alla leið? Verður veginum þá lokað yfir veturinn og mun öll þessi dýrmæta framkvæmd aðeins skila því að hægt verður að keyra frá Dettifossi að Ásbyrgi frá maí og fram í október, í stað þess að hann sé opin frá júní og fram í september eins og verið hefur? Tryggjum vetrarmokstur á þessum vegi allan ársins hring og gerum það strax.

Baldvin Esra Einarsson

Formaður stjórnar Markaðsstofu Norðurlands og forsvarsmaður ferðaþjónustufyrirtækis á Norðurlandi.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744