Börn hjálpa börnum

Nemendur fimmta bekkjar Borgarhólsskóla gengu í hús á Húsavík í marsmánuði til að safna fyrir ABC-barnahjálpina.

Börn hjálpa börnum
Fólk - - Lestrar 375

Nemendur fimmta bekkjar Borgarhólsskóla gengu í hús á Húsavík í marsmánuði til að safna fyrir ABC-barnahjálpina.

Alls söfnuðust 199.691 kr. sem er dágott en frá þessu segir á heimasíðu skólans þaðan sem meðfylgjandi mynd er fengin.

ABC-barnahjálp er íslenskt hjálparstarf sem stofnað var 1988 í þeim tilgangi að veita nauðstöddum börnum varanlega hjálp. ABC starfar í 8 löndum í Afríku og Asíu. Skjólstæðingar ABC eru þeir umkomulausu og markmiðið er að hjálpa þeim að lifa lífinu með reisn. Menntun er mikilvægasti hlekkurinn í að rjúfa vítahring fátæktar.

Verkefnið er árviss viðburður í skólastarfinu og reglulega heimsækja einstaklingar skólann sem starfa við samtökin með fræðslu og myndir úr starfinu á vettvangi út í hinum stóra heimi.

5. bekkur Borgarhólsskóla

Nemendur fimmta bekkjar með viðurkenningarskjal að lokinni söfnun.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744