Umfjöllun: Grćnir sóttu fyrsta stig sumarsins í Bogann

Völsungar áttu útileik á móti Tindastól sem fór fram í Boganum á Akureyri vegna veđurađstćđna, en grasiđ á Sauđárkróki er engu skárra en ţađ sem er á

Umfjöllun: Grćnir sóttu fyrsta stig sumarsins í Bogann
Íţróttir - Elís Orri Guđbjartsson - Lestrar 941 - Athugasemdir ()

Liđsmynd fyrir leikinn
Liđsmynd fyrir leikinn

Völsungar áttu útileik á móti Tindastól sem fór fram í Boganum á Akureyri vegna veđurađstćđna, en grasiđ á Sauđárkróki er engu skárra en ţađ sem er á Húsavíkurvelli. Getum prísađ okkur sćl međ nýja gervigrasvöllinn okkar. Stólarar voru međ eitt stig fyrir leikinn en Völsungar voru án stiga eftir tap gegn BÍ/Bolungarvík í fyrstu umferđ.

Byrjunarliđ Völsungs: Dejan Pesic, Sveinbjörn Már Steingrímsson, Marko Blagojevic, Péter Odrobéna, Sindri Ingólfsson (Halldór Fannar Júlíusson ’82), Hrannar Björn Steingrímsson (f), Halldór Orri Hjaltason, Pétur Ásbjörn Sćmundsson (Arnţór Hermannsson ’82), Guđmundur Óli Steingrímsson, Hafţór Mar Ađalgeirsson, Ásgeir Sigurgeirsson.

Gul spjöld: Hafţór Mar Ađalgeirsson, Sindri Ingólfsson.

 1

Leikurinn byrjađi svo sannarlega af krafti en eftir um tíu mínútna leik átti Guđmundur Óli hornspyrnu inn á teig heimamanna. Völsungar vinna skallaeinvígiđ og á sama augnabliki mundar Doddi dómari flautuna og vítaspyrna er dćmd. Á hvađ vitum viđ ekki alveg, en ţađ kemur ekki ađ sök. Marko steig á punktinn og setti markvörđ Tindastóls í rangt horn, 1-0!

Völsungar efldust fyrir vikiđ og fimm mínútum síđar áttu Völsungar flotta sókn sem endađi međ ţví ađ litli krulluhnokkinn okkar lagđi boltann örugglega í netiđ. Fagnađarlćtin stóđu ţó ekki lengi yfir ţví Doddi flautađi aftur nema núna til ţess ađ taka af okkur mark en ekki gefa okkur ţađ. Svekkjandi, en ţađ má ţó fćra rök fyrir ţví ađ Völsungar hafi brotiđ af sér í ađdraganda marksins.

6

Eftir um hálftíma leik eigum viđ Völsungar stórhćttulega skyndisókn. Stólararnir eiga hornspyrnu sem Haffi skallar frá, Hrannar fćr boltann á miđjunni og geysist upp. Upp á toppi tekur Ásgeir viđ honum og skytturnar ţrjár, Ásgeir, Hrannar og Haffi geysast upp völlinn. Sóknin endar ţannig ađ Haffi er einn á móti markmanni Tindastóls en honum bregst bogalistin og skotiđ geygjar. Óheppnir ađ bćta ekki viđ öđru marki ţarna!

2

Ţađ verđur ađ nýta sóknirnar ţví annars er alltaf möguleiki á ţví ađ verđa refsađ, og sú var akkúrat raunin. Á 38. mínútu sćkja Tindastólsmenn upp vćnginn og koma boltanum í teiginn. Eftir smá klafs endar boltinn fyrir heppni hjá sóknarmanni Stólanna sem tekur boltann á kassann og setur hann innanfótar í horniđ. Stađan orđin 1-1 og leikurinn í járnum.

Lokamínútur fyrri hálfleiksins voru ćsispennandi en fyrst á Odrobéne ćvintýralega lausan skalla af markteig sem markmađur ţeirra ver auđveldlega og svo fćr Haffi algjört dauđafćri á 48 mínútu leiksins, en hann hitti boltann illa og skotiđ endađi í hliđarnetinu. Ótrúlegt alveg hreint.

4

Seinni hálfleikur var tíđindalítill og gerđist fátt markverkt. Ţegar tuttugu mínútur voru eftir sauđ ađeins upp úr og  en ţó var engum spjöldum lyft. Skömmu eftir ţađ komu Arnţór Hermannsson og Halldór Fannar inn á í stađ Sindra Ingólfs og Péturs Kling.

Undir lok leiksins voru Tindastólsmenn ţó óheppnir ađ stela ekki sigrinum, ţeir áttu ţá aukaspyrnu utan af kanti sem ţeir unnu í teignum en sem betur fer endađi hún framhjá. Sömuleiđis unnu ţeir okkur í loftinu í hornspyrnu stuttu síđar en boltinn fór hárfínt yfir. Skjótt skipast veđur í lofti og keyrđu Völsungar upp völlinn í skyndisókn og hefđi Ásgeir getađ laumađ inn marki ţegar hann átti skot frá vítateig en inn vildi boltinn ekki. Á hinum endanum gátu svo Stólarar refsađ, en einbeitingarleysi hjá öftustu fjórum varđ ţess valdandi ađ boltanum er laumađ fyrir aftan varnarlínuna ţar sem sóknarmađur ţeirra nćr skoti ađ marki en Dejan er vandanum vaxinn í markinu og nćr ađ halda ţessu frá - sem betur fer!

3

Síđasta tćkifćri leiksins áttu Völsungar en Hrannar tók ţá aukaspyrnu sem var frekar mislukkuđ og fyrsti varnarmađur kom henni burt. Dómarinn flautađi ţá leikinn af og jafntefli niđurstađan. Völsungar fengu svo sannarlega betri fćri í leiknum og voru hreinlega óheppnir ađ skora ekki tvö, jafnvel ţrjú fćri í fyrri hálfeik. Skyndisóknir okkar manna geta veriđ alveg baneitrađar og klárlega okkar helsta vopn í sumar.  Ţađ er aftur á móti mikiđ umhugsunarefni hvađ viđ töpum mörgum skallaboltum, bćđi á miđjunni og í teignum. Ţetta getur ađeins endađ á einn veg, og hann er ekki okkur hliđhollur.

5

Leikurinn stál í stál, jákvćđu punktarnir eru ţeir ađ fyrsta stigiđ er komiđ í hús og okkur eru allir vegir fćrir. Núna ţurfum viđ ađ reima markaskónna almennilega á okkur og sćkja ţrjú stig í nćsta leik. ÁFRAM VÖLSUNGUR!!

Arnór Elí Víđisson tók myndirnar fyrir okkur og ţökkum honum fyrir ţćr.

Tengdar greinar:
Hafţór Mar: Hér viljum viđ vera

Dragan: Ánćgđur međ stigiđ


7


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ