Hulda Ósk í Ţór/KA

Blóđtaka hefur orđiđ hjá kvennaliđi Völsungs en hin unga og efnilega Hulda Ósk Jónsdóttir hefur skrifađ undir hjá Ţór/KA. Hulda Ósk verđur 16 ára á árinu

Hulda Ósk í Ţór/KA
Íţróttir - Ingvar Björn Guđlaugsson - Lestrar 857 - Athugasemdir ()

Hulda Ósk skrifar undir. Mynd/thorsport.is
Hulda Ósk skrifar undir. Mynd/thorsport.is

Blóðtaka hefur orðið hjá kvennaliði Völsungs en hin unga og efnilega Hulda Ósk Jónsdóttir hefur skrifað undir hjá Þór/KA. Hulda Ósk verður 16 ára á árinu en hún spilaði sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk félagsins síðasta sumar eftir gott gengi með 3.flokk félagsins.

Hulda á að baki fimm leiki í meistaraflokk og skoraði hún í þeim leikjum tvö mörk. Hún fór með u-17 landsliði Íslands í undankeppni EM þar sem hún spilaði tvo leiki og skoraði eitt mark.

Hulda er bráðefnilegur leikmaður sem getur vel leyst allar stöður framarlega á vellinum. Hún hefur gott markanef sem skilað hefur henni og flokkum hennar aragrúa af mörkum undanfarin sumur. Hún er enn gjaldgeng í 3.flokk og u-17 landslið Íslands.

Eins og kunnugt er þjálfar Húsvíkingurinn Jóhann Kristinn Gunnarsson kvennalið Þór/KA og gerði þær að Íslandsmeisturum síðastliðið sumar.

Við óskum Huldu Ósk góðs gengis á Akureyri í sumar og vonumst eftir því að sjá hana aftur í grænu Völsungstreyjunni í framtíðinni.


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ