Hafdís og Þorsteinn valin til þátttöku á Smáþjóðaleikunum

Íþrótta- og afreksnefnd FRÍ hefur valið tuttugu keppendur til þátttöku á Smáþjóðaleikunum sem fram fara dagana 28. maí til 1. júní næstkomandi í Luxembor

Hafdís Sigurðardóttir og Þorsteinn Ingvarsson.
Hafdís Sigurðardóttir og Þorsteinn Ingvarsson.

Íþrótta- og afreksnefnd FRÍ hefur valið tuttugu keppendur til þátttöku á Smáþjóðaleikunum sem fram fara dagana 28. maí til 1. júní næstkomandi í Luxemborg.  

Þingeyingarnir Þorsteinn Ingvarsson og Hafdís Sigurðardóttir eru þar á meðal.

Smáþjóðaleikar eru haldnir annað hvert ár en þetta er í 15. skiptið sem leikarnir fara fram.  Þátttökuþjóðirnar eiga það allar sameiginlegt að hafa íbúafjöldi undir 1 milljón en í ár verða þær 9 talsins.  Þjóðirnar eru auk Íslands, Andorra, Kýpur, Malta, Liechtenstein, Luxembourg, Monakó, Svartfjallaland og San Marino. (641.is)

Nánar hér


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744