Leigðu bát til að anna eftirspurn í hvalaskoðun.

Bátaglöggir menn hafa eflaust tekið eftir því að að bátur bættist í Norðursiglingaflotann í byrjun vikunnur. Þetta var, því hann er farinn aftur, Níels Jónsson EA frá Hauganesi við Eyjafjörð.
“Við leigðum hann í þrjá daga því það var allt fullt í okkar báta” sagði Hörður Sigurbjarnarson framkvæmdarstjóri Norðursiglingar í dag. Hörður sagði Níels vera algjöra mublu enda vel hirtur bátur sem hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar í yfir 30 ár.
Annars hefur veðrið leikið hvalaskoðunarfarþega á Skjálfanda unfanfarna daga. Sól á lofti og hitastig yfir 20 gráður ásamt því að nóg hefur verið af hval gerir þessar ferðir að frábærrri upplifun fyrir farþegana.











