Hvammur rekinn yfirdrtti

Í fréttum RÚV í kvöld sagði að Hvammur, dvalarheimili aldraðra á Húsavík hafi undanfarna mánuði verið rekinn á yfirdrætti í Landsbankanum. Rekstrarvanda heimilisins má rekja til þess að ekki hefur fengist heimild félagsmálaráðuneytisins til þess að fjölga þar hjúkrunarrýmum.

Í fréttinni segir að Norðurþing, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur og Tjörneshreppur standi að rekstri Hvamms. Á heimilinu eru nú samkvæmt skilgreiningu félagsmálar-áðuneytisins 10 hjúkrunarrými og 35 dvalarrými. Hjúkrunarrýmin krefjast mun meiri fjármuna frá ríkinu. Brýn þörf hefur lengi verið á að fjölga hjúkrunarrýmum á Hvammi um tíu og hefur meðal annars verið vísað til þess að fimmtán prósent íbúa í þessum sveitarfélögum eru 67 ára og eldri samanborið við rúm 11% víða annars staðar á landinu. Uppsafnaður rekstrarvandi heimilisins vegna þessa er nú um 40 milljónir króna. Soffía Helgadóttir formaður stjórnar Hvamms segir hér um mikinn bráðavanda að ræða. Hún vonast til þess að eiga sem fyrst fund með félagsmálaráðherra um málið.
Heimild: ruv.is











