Ljsmyndasamkeppni Norurings

Frttir

Grsleppuveiarnar fara okkalega af sta r

rn me raumagann sinn.
rn me raumagann sinn.

Örn Jensson var glaðhlakkanlegur á bryggjunni í dag eftir að hafa fengið rauðmaga í matinn hjá köllunum á Ásgeir ÞH sem var að landa eftir grásleppuróður dagsins.

 

  Rauðmaginn kemur sem fyrr í grásleppunetin og er lítið annað fyrir sjómenn að gera en fleygja honum. Fáir vilja borða hann nú til dags, og skiptir engu þó hann fáist gefins hjá köllunum.

 

  Annars er það að segja af grásleppuveiðinni að hún fer sæmilega af stað. Þeir bátar sem voru að landa í dag þegar ljósmyndari 640.is var á bryggjunni voru með þetta 3-4 tunnur af sulli en ekki voru allir komnir að.

 

  Sömu sögu er að segja á Kópaskeri, veiðin fer þokkalega af stað og heyrðist af einum bát þaðan með sex tunnur af sulli í dag. 640.is heyrði einnig í einum grásleppusjómanni á Þórshöfn og er þetta svipað þar, veiðin fer þokkalega af stað.

 

Á Íslandsvefnum segir um Hrognkelsið:

Hrognkelsið þekkja margir betur undir nöfnunum, Rauðmagi og Grásleppa. Hængurinn er nefndur Rauðmagi vegna litarins sem hann tekur á sig þegar þeir koma upp á grunnsævi síðla vetrar. Hrygnan er hinsvegar grá að lit og nokkuð stærri en karlinn. Hún hefur á seinni áratugum orðið mjög verðmæt vegna mikils magns hrogna sem hún ber í kviðnum upp á grunnslóð á vorin. Þegar Grásleppan kemur hefur Rauðmaginn þegar helgað sér svæði í þarabeltinu og eftir að hann hefur frjóvgað eggin gætir hann þeirra fram að klaki.

 

 

 



Bland poka

Til sölu borðstofuborð og sex stólar. Smelltu á myndina hér að neðan til að skoða betur.

 

 

 

Mynd augnabliksins

gunnar_kjartan.jpg

Knnun

a fara berjam

Dagatal

« September 2010 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930 

nstunni

Engir viburir nstunni

Pstlistar

Teljari

dag: 548
Samtals: 606604

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskrning