Atvinnuleysið í Þingeyjarsýslum á niðurleið
Almennt - þriðjudagur 09.mars 2010 - Hafþór Hreiðarsson - Athugasemdir (0)

Líf við höfnina á Þórshöfn í gær. Ljósm SÞH
Á heimasíðu stéttarfélaganna segir að sem betur fer hafi dregið úr atvinnuleysinu sem er ekki síst því að þakka að Framsýn réð starfsmann til að vinna að málefnum atvinnuleitenda og miðla þeim í vinnu. Um 30 ungmenni á aldrinum 18 til 24 ára hafa tekið þátt í verkefnum á vegum Framsýnar og samstarfsaðila. Þá hafa um 11 einstaklingar fengið vinnu í gegnum atvinnumiðlun stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum.











