Völsungur styrkir sig

Penninn var á lofti í vallarhúsinu um liðna helgi þar sem þrír leikmenn skrifuðu undir samning við kvennalið Völsung.

Völsungur styrkir sig
Íþróttir - - Lestrar 217

Sylvía Lind Henrýsdóttir og Ólöf Rún Rúnarsdóttir.
Sylvía Lind Henrýsdóttir og Ólöf Rún Rúnarsdóttir.

Penninn var á lofti í vallarhúsinu um liðna helgi þar sem þrír leikmenn skrifuðu undir samning við kvennalið Völsung. 

Í tilkynningu frá Völsungi segir:

Leikmennirnir sem umræðir eru Sylvía Lind Henrýsdóttir, Ólöf Rún Rúnarsdóttir og Sarah Elnicky.
 
Sylvía Lind Henrýsdóttir er ungur leikmaður sem kemur í gegnum yngri flokka starf félagsins og hefur verið að fá aukið hlutverk í meistaraflokk félagsins. Sylvía skrifaði undir tveggja ára samning við félagið og verður gaman að fylgjast með framþróun hennar í grænu teyjunni.
 
Ólöf Rún Rúnarsdóttir er einnig ungur leikmaður sem er okkur Völsungum kunnugur enda fór hún í gegnum yngri flokka félagsins áður en hún fluttist austur á land og lék með Fjarðabyggð/Hetti/Leikni. Það má því segja að Ólöf sé komin aftur heim í græna búninginn.

Ljósmynd aðsend
 
Sarah Elnicky er reynslu mikill leikmaður sem hefur skrifað undir samning við félagið og mun leika með okkur í sumar. Sarah hefur leikið í Svíþjóð, Noregi, Banraríkjunum og Englandi. Meðal liða sem Sarah hefur leikið fyrir eru Sundsvall, Kvarnsveden, Kedkila, Sirius, Haukar og Bristol sem þá voru í efstu deild í Englandi. Það er mikil ánægja að fá eins reynslumikinn leimann í ungt lið Völsungs.
 
Einnig mun Sarah koma að þjálfun yngri iðkenda félagsins sem er gríðarlega jákvætt. Hún hefur mikla reynslu af þjálfun ungra iðkenda og hefur þegar sótt sér tilskilin réttindi til þess. Sarah er væntanleg til Húsavíkur í byrjun apríl.
 
Eins og fyrr segir er mikil ánægja með undirritun samninga við þessa þrjá leikmenn og má vænta frekari frétta af leikmannamálum á komandi vikum.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744