Völsungur sigraði Þrótt Nes öðru sinni

Völsungur sigraði Þrótt Nes öðru sinni um helgina í Mizunodeild kvenna.

Völsungur sigraði Þrótt Nes öðru sinni
Íþróttir - - Lestrar 490

Rut Gomez var stigahæst í leiknum með 14 stig.
Rut Gomez var stigahæst í leiknum með 14 stig.

Völsungur sigraði Þrótt Nes öðru sinni um helgina í Mizunodeild kvenna.

Þróttarar höfðu verið á miklu flugi í deildinni fram að þessari helgi en lið Völsungs er þó hættulegt. Þær sigruðu leik gærdagsins örugglega, 3-0, og gengi liðsins var einnig gott í dag.

Þróttarar byrjuðu vel í fyrstu hrinu og höfðu forystuna en Völsungur sótti fljótt í sig veðrið og var komið yfir um miðja hrinuna. Munurinn jókst svo jafnt og þétt og lauk hrinunni með sannfærandi sigri Völsungs, 25-19. Þróttarar byrjuðu aftur vel í annarri hrinu en Völsungur jafnaði fljótt. Hrinan var svo mjög spennandi fram að lokum en aftur sigu Völsungar fram úr og tryggðu sér 25-21 sigur.

Í þriðju hrinu var það svo Völsungur sem byrjaði mun betur. Þær komust í 4-0 og var munurinn mestur í stöðunni 12-4. Þá hófst endurkoma Þróttar og náði liðið að minnka muninn í eitt stig í stöðunni 17-16. Þá virtist allt hrökkva í baklás og Völsungur skoraði næstu 7 stig. Eftirleikurinn var auðveldur og sigraði Völsungur hrinuna 25-17 og leikinn þar með 3-0.

Rut Gomez var stigahæst í liði Völsungs með 14 stig en Tinna Rut Þórarinsdóttir og Særún Birta Eiríksdóttir skoruðu 8 stig hvor fyrir Þrótt Nes. Eftir helgina er Völsungur með 16 stig eftir 9 leiki en lið Þróttar Nes er með 13 stig eftir 7 leiki. (Blakfréttir.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744