Völsungur sigraði KA í Mizunodeild kvenna í gærÍþróttir - - Lestrar 443
Völsungur sigraði KA í Mizunodeild kvenna í gær en leikið var í Íþróttahöllinni á Húsavík.
Leikurinn skipti litlu máli hvað stöðu liða í deildinni varðar, þarna voru að mætast tvö lið sem voru að leika sinn síðasta leik á tímabilinu og því á leið í sumarfrí eftir leikinn.
Það sást kannski vel því að í lið KA vantaði bæði þjálfara liðsins, Filip Szewczyk, sem og uppspilara liðsins Cailu Rose Stapleton en hún var frá vegna veikinda.
Lið Völsungs var hinsvegar staðráðið í því að enda tímabilið með sigri og fór svo að þær sigruðu leikinn nokkuð þæginlega 3-0 (25-15, 25-23, 25-17).
Hér má sjá lokastöðuna í Mizunodeildinnie nVölsungur hafnaði í neðsta sæti með jafnmörg stig og Þróttur R.