17. maí
Völsungur og TM áfram í samstarfiAlmennt - - Lestrar 180
Íþróttafélagið Völsungur og Tryggingamiðstöðin hafa undirritað nýjan samstarfssamning til eins árs og verður TM því áfram einn helsti stuðningsaðili Völsungs á tímabilinu.
TM mun jafnframt sjá áfram um hluta af tryggingum félagsins.
Á heimasíðu Völsungs segir að tilgangur samstarfsins sé að styðja við bakið á starfsemi Völsungs og um leið að auka viðskipti TM á markaðssvæði Völsungs og meðal stuðningsmanna félagsins.
Á móti stuðningi sínum fær TM auglýsingaskilti á knattspyrnuvellinum, í Íþróttahöllinni, á sundlaugarsvæði og þá verður merki/logo TM sýnilegt á heimasíðu Völsungs.
Lesa meira hér