Völsungur með stórsigur á Einherja

Völsungur fékk Einherja frá Vopnafirði í heimsókn í 3. deild karla í gærkveldi.

Völsungur með stórsigur á Einherja
Íþróttir - - Lestrar 413

Bárðdælski sjarmörinn skoraði með skalla.
Bárðdælski sjarmörinn skoraði með skalla.

Völsungur fékk Einherja frá Vopnafirði í heimsókn í 3. deild karla í gærkveldi.

Heimamenn mættur grimmir til leiks og voru komnir með tveggja marka forystu eftir 11 mínútna leik.

Fyrst skoraði Jóhann Þórhallsson á þeirri 9. og Arnþór Hermannsson bætti við öðru úr vítaspyrnu á þeirri 11.

Svona stóðu leikar í hálfleik en Bergur Jónmundsson jók forystu heimamanna snemma í síðari hálfleik með glæsilegu skallamarki og Jóhann bætti við sínu öðru marki skömmu síðar.

Gestirnir minnkuðu muninn um miðjan hálfleikinn og þar var að verki Eiríkur Páll Aðalsteinsson.

Undir lok leiksin bættu þeir Rafnar Smárason og Sæþór Olgeirsson við mörkum fyrir Völsunga og lokastaðan 6-1.

Völsungur hafði sætaskipti við Einherja og situr nú í 4. sæti deildarinnar.

 

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744