Völsungur fyrsta liðið til að vinna Magna

Völsungur hafði betur gegn Magna í nágrannaslag í 3. deildinni á Grenivíkurvelli í kvöld.

Völsungur fyrsta liðið til að vinna Magna
Íþróttir - - Lestrar 370

Arnþór skoraði sigurmarkið í kvöld.
Arnþór skoraði sigurmarkið í kvöld.

Völsungur hafði betur gegn Magna í nágrannaslag í 3. deildinni á Grenivíkurvelli í kvöld.

Staðan var 1-0 fyrir Húsvíkingum og var þetta jafnframt fyrsti tapleikur toppliðs Magna á tímabilinu. 

Það var Arnþór Hermannsson sem skoraði eina mark leiksins eftir rúman klukkustundar leik. Fimm mínútum eftir markið misstu heimamenn Kristján Sigurólason af velli með rautt spjald.

Í frétt Fótbolta.net segir að sigur Völsungs styrkir stöðu liðsins í baráttunni um 2. sætið, en Magni hefur tryggt sér sigur í deildinni. Völsungur er nú einungis stigi frá Reyni Sandgerði sem vermir 2. sætið, en bæði lið hafa spilað 15 leiki og eiga þrjá eftir. (fotbolti.net)



  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744