Völsungur fćr KR í heimsókn í Mjólkurbikarnum - Draumadráttur segir Jói Kr.

Dregiđ var í 16-liđa úrslit Mjólkurbikars karla í höfuđstöđvum KSÍ í dag.

Jóhann Kr. Gunnarsson.
Jóhann Kr. Gunnarsson.

Dregiđ var í 16-liđa úrslit Mjólkurbikars karla í höfuđ-stöđvum KSÍ í dag.

Völsungur var í pottinum auk 10 liđa úr Pepsi Maxdeildinni, fjórum liđum úr Inkassodeildinni Vestra sem leikur í 2. deild líkt og Völsungur.

Völsungur drógst gegn KR á heimavelli en ţađ var einmitt KR sem Völsungur mćtti síđast ţegar liđiđ komst í 16 liđa úrslit bikarsins. Ţađ var 1992 og heimaleikur líkt og nú.

KR sigrađi ţann leik 2-1 međ mörkum Steinars Ingimundarsonar. Mark Völsungs gerđi Hilmar Ţór Hákonarson.

"Ţetta er auđvitađ bara draumadráttur fyrir okkur hér. Ađ fá eitt allra sterkasta liđiđ hérlendis í heimsókn á Húsavíkurvöll. Ekki skemmir fyrir ađ gamlir félagar Pálmi Rafn og Aron Bjarki eru lykilmenn í KR. Ţađ verđur gaman ađ fá ţá í heimsókn og sjá um leiđ okkar stráka reyna sig viđ svona sterkt liđ. Nú er bara ađ hvetja alla íţróttaáhugamenn, Völsunga og velunnara nćr og fjćr ađ mćta á völlinn og búa til alvöru stemningu" sagđi Jóhann Kristinn Gunnarsson ţjálfari Völsungs í samtali viđ 640.is rétt eftir dráttinn.

Annars var drátturinn svona:

Víkingur R. - KA 
Grindavík - Vestri 
ÍBV - Fjölnir 
FH - ÍA 
Keflavík - Njarđvík 
Ţróttur R. - Fylkir 
Völsungur - KR 
Breiđablik - HK 

16-liđa úrslitin verđa leikin 29. og 30. maí en ekki er búiđ ađ leikjum á leikdaga.


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744