Völsungur á góðri siglingu í Mizunodeild kvennaÍþróttir - - Lestrar 538
Völsungur tók á móti Þrótti Reykjavík í Mizunodeild kvenna í gær en leikið var í íþróttahöllinni á Húsavík.
Völsungur hafði fyrir leikinn náð í tvö rándýr stig eftir 3-2 sigur á Aftureldingu á meðan Þróttur Reykjavík sat stigalaust á bottni deildarinnar.
Völsungur tók fyrstu tvær hrinur leiksins 25-22 en fyrstu tvær hrinurnar voru nokkuð kaflaskiptar þar sem bæði lið skiptust á góðum köflum. Þróttur Reykjavík komst hinsvegar í 5-0 strax í þriðju hrinu með Maríu Gunnarsdóttur í uppgjöf. Völsungur náði ekki að vinna upp þetta forskot og fór Þróttur Reykjavík með sigur í hrinunni 25-19.
Völsungur tók hinsvegar við sér í fjórðu hrinu og náðu góðum tökum á hrinunni, Völsungur lét forskotið ekki af hendi og endaði hrinan með sigri Völsungs 25-20 og sigri í leiknum 3-1.
Stigahæst í leiknum var María Gunnarsdóttir leikmaður Þróttar Reykjavíkur með 16 stig en stigahæstar í liði Völsungs voru Þórunn Harðardóttir og Sladjana Smiljanic með 15 stig hvor.
Völsungur situr eftir leikinn í 4.sæti með 5 stig eftir 4 leiki á meðan Þróttur Reykjavík situr í 5. og neðsta sæti með 0 stig eftir 6 leiki. (blakfrettir.is)