Mtmla tillgu a deiliskipulagi

Mtmla tillgu a deiliskipulagi 70 bar Hsavk hafa rita nafn sitt undirskriftalista ar sem tillgu a breyttu deiliskipulagi hafnarsvisins

Mtmla tillgu a deiliskipulagi
Almennt - Hafr Hreiarsson - Lestrar 554 - Athugasemdir (1)

Fr Hsavkurhfn.
Fr Hsavkurhfn.

70 íbúar á Húsavík hafa ritað nafn sitt á undirskriftalista þar sem tillögu að breyttu deiliskipulagi hafnarsvæðisins á Húsavík er mótmælt. Íbúunum finnst að skyggt sé á kirkjuna með tillögunni.

Ný deiliskipulagstillaga fyrir miðhafnarsvæðið á Húsavík gerir ráð fyrir því að byggingar á hafnarsvæðinu, geti orðið hærri en götulína Garðarsbrautar, það er að segja þeim megin götunnar sem snýr að höfninni, en hinumegin Garðarsbrautar stendur Húsavíkurkirkja. Íbúar á Húsavík eru ekki allir hrifnir af þessum hugmyndum og hafa 70 þeirra skrifað nafn sitt á undirskriftalista gegn tillögunni. Börkur Emilsson er einn þeirra.

"Það er fyrst og fremst verið að mótmæla því að leyfa byggingar þarna og skyggja á kirkjuna, og útsýni bæði af og frá kirkju, sem er náttúrulega ein fallegasta kirkjan á landinu," segir hann.

Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir því að byggingar sem standa við Hafnarstétt geti hækkað og séu þá hærri en götulína Garðarsbrautar. Börkur segir að þetta muni hafa neikvæð áhrif á ásýnd bæjarins.

"Þarna koma tugir þúsunda ferðamanna á ári að njóta útsýnis niður að hafnarsvæði og svo frá hafnarsvæði og upp að kirkju og ég tel að þetta myndi rýra það svæði." (ruv.is)


640.is | byrgarmaur Hafr Hreiarsson | vefstjori@640.is | Smi: 895-6744