Framkvmdir vi Valaheiargng hefjist hi fyrsta

Framkvmdir vi Valaheiargng hefjist hi fyrsta Framsn hefur sendt fr sr lyktun um Valaheiargng ar sem kalla er eftir mlefnalegum umrum um

Framkvmdir vi Valaheiargng hefjist hi fyrsta
Asent efni - Hafr Hreiarsson - Lestrar 90 - Athugasemdir (1)

Framsýn hefur sendt frá sér ályktun um Vaðlaheiðargöng þar sem kallað er eftir málefnalegum umræðum um þessar mikilvægu samgöngubætur fyrir alla landsmenn.

Ályktunin er svohljóðandi:

„Framsýn- stéttarfélag telur mikilvægt að framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng hefjist hið fyrsta enda liggi fyrir fullnægjandi gögn um kostnað og rekstur ganganna.  Fyrir liggur að framkvæmdin verður fjármögnuð með veggjöldum.

Ljóst er að gerð ganganna skiptir gríðarlega miklu máli fyrir vegfarendur um þjóðveg 1, þjónustusvæðið við Eyjafjörð og atvinnuuppbyggingu í Þingeyjarsýslum.

Framsýn hvetur stjórnvöld til að standa við bakið á þeim aðilum sem standa að gerð ganganna og tryggja þar með framgang verksins.

Þá gagnrýnir félagið þau öfl sem talað hafa framkvæmdina niður með órökstuddum og óvönduðum málflutningi. Þess í stað kallar Framsýn eftir málefnalegum umræðum um þessa mikilvægu samgöngubót fyrir alla landsmenn.“


640.is | byrgarmaur Hafr Hreiarsson | vefstjori@640.is | Smi: 895-6744