Velja mann ársins 2020

Friðgeir Bergsteinsson fékk þá hugmynd á dögunum að velja Þingeying/Húsvíking ársins 2020 og vill fá aðstoð við að velja hann.

Velja mann ársins 2020
Almennt - - Lestrar 478

Friðgeir Bergsteinsson.
Friðgeir Bergsteinsson.

Friðgeir Bergsteinsson fékk þá hugmynd á dögunum að velja Þingeying/Húsvíking ársins 2020 og vill fá aðstoð við að velja hann.

"Nú á dögunum fór hugur minn að reika á heimaslóðir, nánar tiltekið til Húsavíkur.
Margir þaðan hafa verið áberandi á árinu sem leið og langar mig að veita þeim einstaklingi sem fær flest atkvæði frá ykkur viðurkenningu.
 
Ég er búinn að heyra í nokkrum fyrirtækjum á Húsavík sem ætla gefa vinning. Langar mig að þið fylgjendur á þessari síðu sendið mér ykkar tillögur að Þingeyingi/Húsvíkingi ársins 2020. Það má vera einhver sem ykkur finnst það skilið.
 
Endilega sendið póst á netfangið mitt, fridgeirb@gmail.com og í byrjun febrúar verður sá einstaklingur sem fær flest atkvæði tilkynntur hér. 100% trúnaður fylgir öllum ábendingum. Hlakka til að heyra frá ykkur". Segir Friðgeir.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744