Vel sóttir handboltadagar á Húsavík

Síðastliðna helgi stóð HSÍ í samstarfi við Völsung fyrir Handboltadögum á Húsavík.

Vel sóttir handboltadagar á Húsavík
Íþróttir - - Lestrar 179

Vel heppnaðir handboltadagar. Lj. hsi.is
Vel heppnaðir handboltadagar. Lj. hsi.is

Síðastliðna helgi stóð HSÍ í samstarfi við Völsung fyrir Handboltadögum á Húsavík.

Börnum á grunnskólaaldri stóð til boða að æfa frítt undir leiðsögn reyndra þjálfara frá HSÍ en frá þessu segir á heimasíðu sambandsins.

Gunnar Magnússon, íþróttastjóri HSÍ og Jónatan Magnússon, þjálfari KA stýrðu æfingunum þessa helgi. Vel var mætt á æfingarnar og var mikil ánægja bæði hjá þjálfurunum og þátttakendum með helgina.

HSÍ mun senda sína fulltrúa aftur á Húsavík aftur fyrir áramót og aðstoða hið góða starf handknattleiksdeildar Völsungs. Markmið samstarfsins er að styrkja stoðir handknattleiks á Húsavík og fjölga iðkendum.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744