Veiði hófst í Laxá í Aðaldal í gær

Laxá í Aðal­dal opnað í gærmorg­un þegar bænd­ur og ætt­ingj­ar frá Laxa­mýri veiddu svæðið fyr­ir neðan Æðarfossa.

Veiði hófst í Laxá í Aðaldal í gær
Almennt - - Lestrar 322

Jón Helgi og Halla Bergþóra með lax.
Jón Helgi og Halla Bergþóra með lax.

Laxá í Aðal­dal opnað í gærmorg­un þegar bænd­ur og ætt­ingj­ar frá Laxa­mýri veiddu svæðið fyr­ir neðan Æðarfossa.

Frá þessu segir á Fésbókarsíðunni Laxá í Aðaldal en þar er einnig hægt að sjá fleiri myndir frá opnun Laxár.

Að sögn Jóns Helga Björns­son­ar á Laxa­mýri þá veidd­ist ágæt­lega og urðu menn var­ir við tals­vert mikið af fiski. Sett var í átta laxa og náðist að landa fimm af þeim.

Það var syst­ir Jóns, Halla Bergþóra Björns­dótt­ir, sem fékk fyrsta lax­inn sem hún veiddi í Kistu­kvísl að vest­an og reynd­ist vera 90 cm hæng­ur. Hinir fjór­ir voru á bil­inu 80 til 87 cm lang­ir og voru að sögn Jóns bjart­ir og sér­stak­lega fal­leg­ir vor­lax­ar.

Að sögn Jóns var ein­göngu veitt fyr­ir neðan Æðarfossa í morg­un en eft­ir há­degið verður svo byrjað að veiða fyr­ir ofan. Sunna­nátt hef­ur verið ríkj­andi og við þær aðstæður geng­ur lax­inn frek­ar upp Æðarfossa og því verður spenn­andi að sjá hvað veiðist þar, en fyrstu lax­arn­ir sáust í kring­um 20. maí.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744