Valgerður náði öðru sætinu

Úrslit liggja nú fyrir í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Kristján Þór Júlíusson var langefstur í prófkjörinu en Valgerður

Valgerður náði öðru sætinu
Almennt - - Lestrar 166

Valgerður Gunnarsdóttir.
Valgerður Gunnarsdóttir.

Úrslit liggja nú fyrir í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.  

Kristján Þór Júlíusson var langefstur í prófkjörinu en Valgerður Gunnarsdóttir er í öðru sæti. Tryggvi Þór Herbertsson er ekki meðal sex efstu í prófkjörinu. 

Á kjörskrá við lok kjörfundar voru 4401 manns. Alls greiddu 2714 atkvæði, kjörsókn var því 61,7 %. Auð og ógild voru 78 atkvæði. 

Níu einstaklingar buðu sig fram í prófkjörinu og kosið var um sex sæti.

Niðurstaðan er bindandi fyrir þá frambjóðendur sem hlutu 50% greiddra atkvæða.

 

Niðurstöður eru eftirfarandi:

Í 1. sæti var Kristján Þór Júlíusson með 2223 atkvæði.

2.  (í 1.–2. sæti) var Valgerður Gunnarsdóttir með 1291 atkvæði.

3.  (í 1.–3. sæti) var Ásta Kristín Sigurjónsdóttir með 1158 atkvæði.

4.  (í 1.–4. sæti) var Jens Garðar Helgason með 1278 atkvæði.

5.  (í 1.–5. sæti) var Erla S. Ragnarsdóttir með 1529 atkvæði.

6.  (í 1.–6. sæti) var Bergur Þorri Benjamínsson með 1752 atkvæði.

Aðrir hlutu færri atkvæði.
Meðfylgjandi eru heildartölur fyrir fyrstu sex sætin.

Heimild:641.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744