Unnið að viðgerð á brúkrana - Slökkt á ofninum

Í gær var slökkt á ofni í verksmiðju PCC BakkaSilicon vegna tæknilegrar bilunar í stjórnkerfi brúkrana steypuskálans.

Kísilver PCC BakkaSilicon á Bakka.
Kísilver PCC BakkaSilicon á Bakka.

Í gær var slökkt á ofni í verksmiðju PCC BakkaSilicon vegna tæknilegrar bilunar í stjórnkerfi brúkrana steypuskálans.

Frá þessu er greint á vef fyrirtækisins.

"Undanfarið hafa starfmenn, og aðrir sem koma að verkefninu, kappkostað að koma ofninum okkar, henni Birtu, í rekstur. Eins og við höfum greint frá hafa ýmis úrlausnarmál komið upp á. Öll hafa þau verið leyst með nokkuð skjótum og öruggum hætti. Í gær þegar hafist var handa að setja fullt afl á ofninn og hefja framleiðslu af krafti vildi svo til að tæknileg bilun kom upp í stjórnkerfi brúkrana steypuskálans.

Það veldur því að steypulínan er óvirk og án hennar er ekki hægt að framleiða kísil. Slökkt hefur verið á ofninum og liggur rekstur hans því niðri núna. Þessa stundina eru sérfræðingar á leið frá framleiðanda kranans í Þýskalandi til Bakka. Reiknað er með að það muni taka nokkra daga að komast yfir þennan hjalla.

Þó ofninn sé ekki í rekstri akkúrat núna er enn mikill hiti í honum. Það gæti valdið því, af sömu ástæðu og gerðist um helgina, að væg viðarbrennslulykt berist til Húsavíkur". Segir í frétt á vef fyrirtækisins.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744