Ungmennafélag Langnesinga hlaut Grasrótarverðlaun KSÍ

Ungmennafélag Langnesinga hlaut Grasrótarverðlaun KSÍ 74. ársþingi sam­bands­ins sem haldið var í Ólafs­vík um helgina.

Ungmennafélag Langnesinga hlaut Grasrótarverðlaun KSÍ 74. ársþingi sam­bands­ins sem haldið var í Ólafs­vík um helgina.

Á vef KSÍ segir að í grasrótar-heimsóknum KSÍ síðasta sumar til 33 staða á landsbyggðinni sem Siguróli Kristjánsson sá um, vakti sérstaka athygli krafturinn og knattspyrnuáhuginn á Þórshöfn hjá Ungmennafélagi Langnesinga. 

"Þrátt fyrir fámennið, þar sem um 70 börn eru á grunnskólaaldri, er haldið úti knattspyrnuæfingum allt árið fyrir börnin þar sem þátttaka er góð. 

Ungmennafélag Langnesinga, sem er aðildarfélag innan KSÍ, sendir lið til þátttöku á opnum mótum undir eigin nafni, eða í samstarfi við Einherja, víða um land þar sem öflugt foreldra- og sjálfboðaliðastarf er lykillinn að öflugu knattspyrnu- og forvarnarstarfi. 

Ungmennafélag Langnesinga er dæmi um lítið félag þar sem áhugasamir og öflugir foreldrar eru drifkrafturinn í starfinu og hvatning fyrir aðra í sambærilegum sveitarfélögum. Knattspyrnan þarf á sjálfboðaliðum að halda í öllum byggðum landsins til þess að byggja upp öflugt knattspyrnustarf til lengri tíma" segir á vef KSÍ. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744