Ungir Völsungar á faraldsfæti

Að undanförnu hafa Atli Barkarson, Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir og Krista Eik Harðardóttir verið boðuð til æfinga í undirbúningi fyrir val á U-17 ára

Ungir Völsungar á faraldsfæti
Íþróttir - - Lestrar 473

Að undanförnu hafa Atli Barkarson, Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir og Krista Eik Harðardóttir verið boðuð til æfinga í undirbúningi fyrir val á U-17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu.

Á heimasíðu Völsungs segir að Atli hafi æft helgina 14.-16. október í Reykjavík undir stjórn Hallldórs Björnssonar og Freys Sverrissonar (af húsvískum ættum) landsliðsþjálfara. Hér má sjá hópinn hjá strákunum.

Áslaug Munda og Krista Eik verða við æfingar næstkomandi helgi, 22.-23. okt.  undir stjórn Úlfars Hinrikssonar landsliðsþjálfara.

Hér má sjá dagskrá og hópinn hjá stelpunum um helgina. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744