Undanúrslitaleikur á Húsavíkurvelli

Eins og áður hefur komið fram á 640.is vann meistaraflokkur karla sinn riðil í Lengjubikarnum og það án þess að tapa leik.

Undanúrslitaleikur á Húsavíkurvelli
Íþróttir - - Lestrar 533

Eins og áður hefur komið fram á 640.is vann meistaraflokkur karla sinn riðil í Lengjubikarnum og það án þess að tapa leik.
 
Þeir eru því komnir áfram í undanúrslit mótsins og mun liðið mæta Leikni Fáskrúðsfirði á morgun, Sumardaginn fyrsta, klukkan 14:00 á gervigrasinu hér á Húsavík.
 
Leiknir unnu alla leiki í sínum riðli og komust með sannfærandi hætti í undanúrslitin. Því má búast við hörku leik á morgun og um að gera að mæta á völlinn og hvetja strákana til sigurs og um leið í úrslit Lengjubikarsins. 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744