07. ágú
Umsókn Víkurskeljar um innflutning á smáostrum hafnaðAlmennt - - Lestrar 276
Samkvæmt frétt í Morgunblaðinu í dag mun ostruræktarfyrirtækið Víkurskel þurfa að leggja upp laupana ef ákvörðun Umhverfisstofnunar um að fyrirtækið megi ekki flytja inn ostrur til áframræktunar verður lokaniðurstaðan.
Þetta segir Kristján Phillips hjá Víkurskel í samtali við Morgunblaðið en eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær var umsókn fyrirtækisins um innflutning á milljón smáostrum frá Spáni til áframræktunar í Skjálfandaflóa hafnað.
Var ástæðan fyrir höfnuninni m.a. ágengni tegundarinnar, smithætta af hennar völdum og frjósemi hennar.
Umsögn Umhverfisstofnunar.