Tvfalda m hlutaf Greiri leiAlmennt - Hafr Hreiarsson - Lestrar 125 - Athugasemdir (0)
Hluthafafundur Greiðrar leiðar ehf., sem á 49 prósenta hlut í Vaðlaheiðargöngum ehf, heimilaði í dag að tvöfalda hlutafé félagsins, úr 200 milljónum króna í 400 milljónir.
Í tilkynningu frá Greiðri leið segir að þetta sé gert vegna þess að mögulega verði hlutafé aukið í Vaðlaheiðargöngum, sem Greið leið á 49% prósenta hlut í. Vegagerðin á 51% í Vaðlaheiðargöngum. Í tilkynningunni segir einnig að það að styrkja eigið fé félagsins að baki framkvæmdunum við Vaðlaheiðargöng hafi verið ein af helstu ábendingum IFS greiningar í nýlegri greinargerð um Vaðlaheiðargöng sem unnin var að beiðni fjármálaráðuneytisins.
Eigendur Greiðrar leiðar eru sveitarfélögin á Norðausturlandi og átta fyrirtæki auk Eyþings, sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu. Í greinargerð með samþykkt fundarins segir að heimilt sé að bjóða nýjum aðilum hlutafé til kaups, nýti ekki allir núverandi hluthafar forkaupsrétt sinn. Pétur Þór Jónasson, stjórnarformaður Greiðrar leiðar, segir að með ákvörðun hlutafa sé undirstrikaður ríkur vilji heimafólks til að framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng hefjist hið fyrsta. (ruv.is)


640.is Facebook